Frá Grunnskólanum í Stykkishólmi
Lausar stöður við Grunnskólann í Stykkishólmi 100% staða umsjónarkennara á miðstigi frá 1. ágúst. 50% staða heimilisfræðikennara í 5. - 7. bekk frá 1. ágúst. 25% staða tónmenntakennara í 1. - 5. bekk frá 1. ágúst. 25% staða leiklistarkennara í 1. - 5. bekk frá 1. ágúst. Hæfniskröfur Kennsluréttindi á grunnskólastigi ásamt leyfisbréfi Leikni í mannlegum samskiptum og færni í að umgangast börn og unglinga Skipulagshæfni, stundvísi og frumkvæði Faglegur metnaður Áhugi og hæfni til að starfa í teymisvinnu 50% staða skólaliða í Regnbogalandi frá 1. ágúst - vinnutími frá kl. 12-16 Hæfniskröfur: Aldurstakmark 20 ára Áhugi á að vinna með börnum Menntun sem nýtist í starfi Krafist er íslenskukunnáttu Hæfni í mannlegum samskiptum Tölvulæsi 100% staða deildarstjóra stoðþjónustu frá 1. ágúst. Hæfniskröfur Menntun í sérkennslufræðum og/eða reynsla af kennslu nemenda með sérþarfir Minnst 2 ára reynsla af starfi í grunnskóla Leikni í mannlegum samskiptum og færni í að umgangast börn og unglinga Skipulagshæfni, stundvísi og frumkvæði Góð tök á íslenskri tungu í ræðu og riti Faglegur metnaður Ábyrgðarsvið Sérkennsla í 50% stöðu Stjórnunarhluti er því 50% Gerð einstaklingsnámskráa og eftirfylgd með námi Samstarf við foreldra og fagaðila vegna málefna nemenda með sérþarfir, sér í lagi lesblindu, einhverfu og ADHD. Næsti yfirmaður stuðningsfulltrúa og kennara sem sinna sérkennslu Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum Kennarasambands Íslands og viðeigandi stéttarfélags. Í Grunnskólanum í Stykkishólmi eru 160 nemendur. Gleði – samvinna – sjálfstæði eru einkunnarorð skólans og störfum við eftir Uppeldi til ábyrgðar. Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir til að efla starfið enn frekar í þeim anda. Stykkishólmsbær eða ,,Bærinn við eyjarnar" er 1200 manna bær á Snæfellsnesi með fallega náttúru og öflugt mannlíf. Í Stykkishólmi er vottað heilsueflandi vatn í sundlauginni. Láttu Hólminn heilla þig
Nánari upplýsingar um starfið veitir Berglind Axelsdóttir skólastjóri í síma 433-8178/895-3828 eða á netfangið berglind@stykk.is. Skriflegum umsóknum skal skilað til skólastjóra ásamt ferilskrá fyrir 26. apríl 2019